Smoothie skálar með góðu skyri eða vegan jógúrti og granóla er hið fullkomna millimál! Fullkomið á öllum tíma dags og einstaklega gott eftir æfingu.
Það má alveg bæta við vökva í blandaran og búa til prótein boost til að drekka á ferðinni.
Banana og berja smoothie skál!
Hráefni:
- 1 frosinn banani
- 2 dl frosin blöndum skógarber
- 1 dl mjólk
- 1 skeið PEAK Whey Prótein (við notuðum Salted Caramel prótein)
- 2 dl vanilluskyr (má sleppa)
- Toppings sem hugurinn girnist (t.d. granóla, banani og fersk ber)
Aðferð:
- Setjið allt nema skyrið og toppings í góðan blandara og blandið vel þar til blandan verður silkimjúk
- Setjið skyrið í botnin á skál, smoothie blönduna yfir og toppið með því sem þið viljið.
|
Vegan mango og hnetusmjör smoothie skál!
Hráefni:
- 1 frosinn banani
- 2 dl frosið mangó
- 1 msk hnetusmjör
- 1 skeið PEAK vegan Cookies and Creme prótein
- 2 dl vegan jógúrt (má sleppa)
- Toppings sem hugurinn girnist (t.d. banani, ferskt mangó, granóla, saxað súkkulaði og hnetusmjör)
Aðferð:
- Setjið allt nema jógúrtið og toppings í góðan blandara og blandið vel þar til blandan verður silkimjúk
- Setjið jógúrtið í botnin á skál, smoothie blönduna yfir og toppið með því sem þið viljið.
|